AGS=Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.

Nú þegar samstarfi við AGS er að ljúka verður lífið erfitt fyrir Steingrím og Jóhönnu. Hingað til hefur stefna AGS verið stefna ríkisstjórnarinnar. Hvað tekur við?

Líklegt er að þau biðji AGS um aðstoð til næstu tveggja ára í ljósi þess að það er það eina sem þau geta verið sammála um, - að treysta dómgreind AGS eða ESB. Ríkisstjórnin hefur enga sjálfstæða innlenda efnahagsstefnu, það voru skilaboð Árna Páls viðskiptaráðherra fyrir stuttu. 


mbl.is Samstarfið betra en ég reiknaði með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Hér leyfir Sigurbjörn Svavarsson handbendi Þorsteins Más Baldvinssonar  að láta sjá sig. Þetta gerpi af manni sem ég var svo vitlaus að bjóða í verkefni með mér ætti að hafa vit á því að láta ekki sjá sig á almannafæri.

Fyrir 4 árum bauð ég Sigurbirni að koma inn í arðvænlegt verkefni á jöfnum hlut við mig og taldi að með þvi að samþykja boðið væri hann til í að vinna með mér að heilindum. Það sem ég vissi ekki var að hann var ekki fyrr sestur uppí bíl sinn eftir stofnfund félags okkar að hann hrindi í Þostein Má Baldvinsson og tjáði honum hvað til stæði. 

Bak við tjöldin plottuðu nú þessir tveir kumpánar launráð gegn mér og gekk Sigurbjörn meira að segja svo langt að eyðaleggja tvívegis fyrir okkur í hópnum stórkostleg skipatækifæri til að þóknast Þorsteini sem hélt sér til hlés en lét Sigurbjörn um skítverkin. 

Endirinn var sá að eftir að þeir gátu ekki lengur staðið gegn tilurð þessa góða verkefnis sem ég var upphafshöfundur og driffjöður í að við eignuðumst skip. En þá gekk Sigurbjörn á lagið að undirlagi Þorsteins og var ég svertur með lygum og rógi meðan ég vann að velferð fyrirtækisins á fjalægum miðum. Ekki létu þeir félagar látum fyrr en þeir fengu mig með svikum og prettum flettan eigum mínum í félgainu og rændum tekjum og öllum kostnaði sem ég hafði sett í sköpun félagsins.  

Níðingsverkin sem Sigurbjörn vann á mér meðan á þessu ferli stóð voru mörg og ógeðsleg sem gerir það að verkum að þetta falska og undirförla mann gerpi á engan rétt á að láta að sér kveða  á almennum vettvangi.

Heimildarmaður minn í þessu máli er ÞMB 

Ólafur Örn Jónsson, 27.8.2011 kl. 09:23

2 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Sæll Óli.

Ef Þorsteinn Már Baldvinsson er heimildarmaður þinn, þá skýrir það þetta rugl í þér. 

Sigurbjörn Svavarsson, 27.8.2011 kl. 12:34

3 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Það er aumkunarvert hvernig menn sem svívirt hafa samferðamenn sína halda að út út snúningur geti hvítþvegið þá af illverkum þeirra.

Ég hef ekkert nema sannleikann að segja þegar ég segi að ÞMB hrindi í mig fyrir tveim árum og í tveim samtölum sagði mér hvernig hann hefði staðið að baki þessum manni í Blue Wave málinu. Hvernig við ásamt Gunnari misstum af tækifærinu á Granda skipinu Engey. Hvernig þessi  maður með svikum við okkur upplýsti ÞMB um tækifærið sem við fengum að kaupa Super-togarann Frigg í Argentínu sem síðan var eyðilagt fyrir okkur. 

Eftir símtölin við ÞMB fékk ég staðfestingu á því sem hann sagði frá öðrum aðilum. Ég get raunar upplýst að ég hefði ekki trúað þessum gerning og öðrum glæpum upp á ÞMB nema af því hann sagði mér frá því sjálfur. 

Sigurbjörn stóð í veginum að farið yrði að ýtrekuðum ráðleggingum lögfræðings okkar félaganna og gerður samningur samhliða hluthafasamkomulagi sem tryggði okkur laun og eignarrétt í fyrirtækinu hvað sem á gengi. 

Í stað þess að mér væru borguð laun í 18 mánaða ferli við stofnun og framþróun fyrirtækisins var ég  látinn nota persónulega reikninga mína til að borga hluti sem nauðsynlegir voru við undirbúning skipsins. Gekk þetta svo langt að mér var útvegað lán 40 þus dollarar  til að standa skil á mínum persónulegu reikningum samhliða þeim hlutum sem þurfti að útvega. Allt gert vísvitandi til að arðræna mig ekki eingöngu af hlut mínum í fyrirtækinu heldur freista þess að gera mig og fjölskyldu mína gjaldþrota. Kostnaður minn og fjölskyldu minnar af stofnun fyrirtækisins sem"stolið" var af mér með prettum þessa manns var € 150 þus eða 25 milljónir króna. Eignarhlutur Sigurbjarnar er sennilega ekki minni en 150 til 200 milljónir króna í dag.

Ég ætla gera meira en þessir kónar hafa gert og það er að biðja fjölskyldu og vini Sigurbjarnar fyrirgefningar á að finna mig knúinn að upplýsa um illvirki þessa manns en ég get ekki annað.  Aldrei mun ég aftur sitja þegjandi hjá og láta lágkúrulegann óþjóðalýð valta yfir samborgar sína. 

Ólafur Örn Jónsson, 27.8.2011 kl. 19:06

4 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Óli minn

Þú ert með stórkostlegar ranghugmyndir, ég hef ekki talað við Þorstein Má í áratugi og fékk ekki krónu úr Blue Wave né á ég eignarhlut þar og hef ekki starfað þar í þrjú ár.

Veit satt að segja ekki hvað þú ert að fara með þetta bull. Óska þér alls velfarnaðar en mun ekki svara fleirri slíkum póstum frá þér.

Það yrði auðvelt að draga þig fyrir dóm fyrir þessar fullyrðingar og þá um leið Þorstein Má sem þitt helsta vitni í málinu.

Sigurbjörn Svavarsson, 27.8.2011 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband