Sakleysingjar?

Stundum verður maður hissa og orða vant. Hérna, vegna þess sakleysis sem rís upp úr forugu gólfi stjórnmálanna.

Maður trúir því að  Lilja Mósesdóttir hafi virkilega trúað því að engin tengsl yrðu á milli Icesave-málsins og aðildarinnar að ESB. Slíkt sakleysi í stjórnmálum slær mann, það minnir á að hugsjónir eru oft drifaflið sem fær fólk til að taka þátt í stjórnmálum, en hugsjónin kólnar þegar stjórnmálin taka niður grímuna.

Ekki er víst að hinir tveir samferðamenn hennar hafi gengið af trúnni á ESB og líklegt er að þeir vilji frekar skuldsetja íslenska þjóð fyrir glæp einkabanka en að vera útí kuldanum hjá ESB.  


mbl.is „Þá eruð þið bara vandamál fyrir framkvæmdastjórnina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, hvílíkar fréttir, eins og það sé verið að segja okkur eitthvað sem allur heimurinn veit ekki...

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 11:50

2 identicon

Þorgeir,

  Ice-save kemur Evrópusambands aðild ekkert við, nema að því leyti að Evrópusambandið vill ekki glæpamenn inn í sambandið, og það er ekkert nýtt. 

  Maður ímyndar sér umræðun í Tyrklandi. HHHmmmm "af hverju er Tyrkland ekki í Evrópusambandinu"?????   .....þá segja sumir(svipaður sauðahópur og ice-save-evrópuandstæðingar,....já það er vegna þess að þeir hata múslima, en allir vita að ástæðan er allt önnur, en samt er hægt að henda því fram, og segja að það sé ástæðan. 

........við höfum ekki efni á því að vera í afdalamennsku þessi dægrin!!

Jóhannes (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband